Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.

Námskeiðin
Boot Camp býður upp á úrval fjölbreyttra námskeiða sem munu koma þér í besta form lífs þíns. Smelltu á það námskeið sem þú hefur áhuga á til að sjá frekari upplýsingar um það sem og tímana sem í boði eru. Ef þér líst vel á námskeiðið og vilt byrja þá fyllir þú út skráningarformið neðst á síðunni.
Boot Camp
Það er engin tilviljun að þúsundir hafa allir sömu söguna að segja. Þú kemst ekki í betra alhliða form sem nýtist þér í daglegu lífi heldur en með Boot Camp æfingunum. Þú þarft bara að kynnast æfingunum til að falla gjörsamlega fyrir þeim! Allt sem þú þarft að vita um Boot Camp námskeiðin vinsælu. ![]()
BC Elite
Ert þú í nógu góðu formi til að verða Boot Camp Elíta? Ef ekki þá hjálpum við þér að ná þangað!BC Outsiders
Er ekki nóg að vinna inni? Þú þarft ekki að æfa inni heldur getur notið útiveru á meðan þú klárar æfingu dagsins. ![]()
BC Grænjaxlar
Ef þú heldur að þú sért ekki í nógu góðu standi til að prófa Boot Camp þá skjátlast þér. Grænjaxlar henta öllum sem vilja fara rólega af stað en taka samt á því og hafa gaman af í leiðinni. BC Skæruliðar
Nú geta fjölskyldumeðlimir alveg niður í 6 ára æft í Boot Camp. Hrikalega kröftugar og skemmtilegar æfingar sem leyfa krökkum og unglinum að svitna, fá smá útrás og öðlast aukið sjálfstraust. Hóparnir eru fyrir 6-8 ára, 9-11 ára, 12-13 ára og 14-15 ára. ![]()
BC Einkaþjálfun
Ef þú kýst heldur að æfa með einkaþjálfara en vilt kynnast Boot Camp æfingaaðferðinni þá er þetta lausnin fyrir þig. Allir þjálfararnir okkar hafa mikla reynslu af Boot Camp, eru með menntun að baki sér og tilbúnir að leggja sig fram fyrir þig. ![]()
BC Fjarþjálfun
Því miður hafa ekki allir tök á að koma á námskeið. Boot Camp Fjarþjálfunin býður fólki víðs vegar um heiminn tækifæri til að koma sér í dúndurform með lágmarks búnaði. Æfingarnar eru ávallt jafn góðar, hvort sem þú gerir þær á ströndum Hawaii, á Hallormsstaðarskógi eða þá í fjöllum Austurríkis. ![]()
BC Hlauparar
Eru hlaup þín ástríða? Eða eru þau bara eitthvað sem þú vilt virkilega bæta þig í? Við verðum með sérstakt hlaupanámskeið í sumar sem mun koma þér í betra hlaupaform fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Það skiptir engu máli hvernig þú ert í dag eða hversu langt þú vilt hlaupa - þessar æfingar munu skila þér meiri árangri á skemmri tíma en þú hefur náð fyrr! ![]()
Önnur námskeið í Reykjavík:
CrossFit Stöðin
Fjölbreyttar æfingar eftir CrossFit æfingakerfinu. ![]()
Fullfrísk: meðgöngu- og mömmuleikfimi
Skemmtileg líkamsrækt fyrir konur á meðgöngu sem og eftir barnsburð. ![]()
Vinsælt:
Stundatafla
Verðskrá
Spurt og svarað
Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn
Núverandi BC námskeið:
26. mars - 6. maí
Næstu BC námskeið:
4. júní - 15. júlí
16. júlí - 26. ágúst
10. september - 21. október
Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sumartilboð.
Skæruliðanámskeið:
4. júní - 9. september



