Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Um námskeiðið
HVAÐ?
40 klukkustundir af gríðarlega erfiðri þjálfun sem reynir ekki síður á hugann en líkamann. Allir kennarar námskeiðsins eru vanir þjálfarar, bæði úr Boot Camp sem og bandarísku Navy SEALs sérsveitunum.
HVENÆR?
- Fylgstu með tilkynningu á forsíðunni um næsta námskeið.
Sendu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. póst ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi námskeiðið.
HVE MIKIÐ?
Verð: 35.000 krónur
Innifalið er: fæði, gisting og akstur á meðan námskeiðinu stendur
HVERNIG?
Eftirfarandi þættir eru á dagskránni:
- Nánar tilkynnt síðar...
Don Mann

Don Mann er margverðlaunaður fyrrum SEALs yfirmaður með víðamikla reynslu og þekkingu að baki. Hann stofnaði SEAL Training Adventures eftir að bandaríski sjóherinn kom að máli við hann og bað hann um að búa til námskeið fyrir almenning sem líkir eftir inntökuferli sérsveitanna til að fá mögulega áhugasama nýliða inn. Fyrir nánari lýsingu á ferli hans má sjá síðuna hans: www.usfrogmann.com
Steve Erle

Stephen Erle á og rekur SEAL Training Adventures námskeiðin og er starfandi læknir. "Doc" Erle er læknir SAC námskeiðanna og er í varaliði sérsveita bandaríska landhersins (Green Berets).
Kory Knowles

Kory Knowles er fyrrum Navy SEAL sem hefur gert allt sem viðkemur sveitunum. Frá því að finna nýja meðlimi, hjálpa þeim í gegnum þjálfunina til þess að vera sjálfur BUD/S leiðbeinandi. Kory starfaði í inntökubúðum sveitanna í Coronado í Kaliforníu í þrjú ár og sá um fyrsta stig þjálfunarinnar sem byggist mikið á líkamlegu og andlegu þreki. Hell week er einmitt í þessu sama stigi.
Arnaldur Birgir Konráðsson
Stofnandi/þjálfari/framkvæmdastjóri Boot Camp.
Róbert Traustason
Stofnandi/þjálfari/rekstrarstjóri Boot Camp.
