Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.

BC Elite
Boot Camp Elite er næsta þrep fyrir Boot Camp meðlimi. Inntökupróf í Boot Camp Elite er haldið fjórum sinnum á ári fyrir áhugasama og þeir sem standast það fá sérstakar áskoranir frá þjálfurum sem gera ávallt meiri kröfur til þeirra en annarra á æfingum. Meðlimir Boot Camp Elite geta því æft í hvaða hóp sem er í stundaskránni en fá viðbót við æfingar sem henta þeirra getustigi. Einnig eru sérstakar Elite æfingar með haldnar reglulega fyrir þennan hóp þar sem ekkert er gefið eftir. Til að komast í hópinn þarftu að vera meðlimur í Boot Camp og ná lágmarkinu í inntökuprófinu.
Lágmarkskröfur í BC Elite
| Grein | Tími |
Viðmið stráka |
Viðmið stelpna |
|---|---|---|---|
| Hlaup |
12:00 |
2,75 km |
2,5 km |
| Armbeygjur | 2:00 |
80 stk |
40 stk |
| Uppsetur | 2:00 |
80 stk |
80 stk |
| Froskar með hoppi |
2:00 |
40 stk |
40 stk |
| Upphífingar |
2:00 |
8 steindauðar | 5 (má sveifla) |
Viltu verða Boot Camp Elíta?
Skráðu þig þá í Boot Camp og spreyttu þig á næsta elítuprófi. Við munum hvetja þig til dáða þar sem við viljum að allir setji sér þetta markmið. Elítuhópurinn okkar er ótrúlega öflugur og góð stemmning innan hans. Mundu bara að allir þeir sem eru í honum í dag voru eitt sinn í þínum sporum - þau settu sér bara markmið og fylgdu því eftir þar til því var náð. Þú getur gert hið sama!
Skráðu þig í Boot Camp og taktu fyrsta skrefið - þú ert þá strax komin/n nær því að tilheyra þessum skemmtilega hóp.
Vinsælt:
Stundatafla
Verðskrá
Spurt og svarað
Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn
Núverandi BC námskeið:
26. mars - 6. maí
Næstu BC námskeið:
4. júní - 15. júlí
16. júlí - 26. ágúst
10. september - 21. október
Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sumartilboð.
Skæruliðanámskeið:
4. júní - 9. september



