Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir - BIS
Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

BC Outsiders

Hvort sem úti er sól, rigning eða snjór falla Boot Camp æfingar aldrei niður vegna veðurs. Í Boot Camp Outsiders fara allar æfingar fram utandyra, allan ársins hring. Þeir sem æfa í hópnum halda því fram að það sé aldrei vont veður á æfingum, bara misgott. Það er kærkomin tilbreyting að æfa úti fyrir þá sem vinna inni allan daginn og einnig þá sem eru vanir að æfa utandyra eða vilja njóta útivistar á sama tíma og þeir koma sér í gott form. Fólk lærir strax að meta það að æfa undir berum himni og árangurinn á þessu námskeiði lætur ekki á sér standa! Við höfum haldið þessu námskeiði gangandi viðstöðulaust síðan 2005 og eru æfingarnar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl 18:15 en staðsetning æfinganna er breytileg milli vikna.


Stundaskrá (21. maí - 9. september)

Hópar Tímar
BC Outsiders Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 18:15
 

Innifalið á námskeiði

- Þrjár Boot Camp æfingar á viku
- Tveggja tíma útiæfing fyrsta laugardag hvers mánaðar
- Aðgangur að æfingaastöðu
- Líkamsmæling við upphaf og lok námskeiða
- Mataráætlun og matardagbók sem hægt er að skila inn
- Ráðgjöf frá þjálfurum um æfingar, mataræði o.fl. 
 


Verðskrá (21. maí - 9. september)

Tegund korta
Almennt verð
m/skólaafslætti
Sumartilboð (21.maí-9.sept) 35.000
35.000
6 vikna námskeið 19.000 16.500
12 vikna námskeið 32.500
27.500
6 mánuðir (4 námskeið) 49.500
42.000
Árskort
75.000
63.500
Prufutími (gengur upp í kort)
2.000
2.000

Skilmálar um greiðslur:

- Greiða þarf allt gjaldið af sumartilboði, 6 vikna og 12 vikna kortum áður en námskeiðið hefst.
- Fáðu upplýsingar í afgreiðslu um greiðsluskilyrði á 6 mánaða og árskorti.
- Sýna þarf gilt skólaskírteini eða aðra staðfestingu á skólavist til að fá skólaafslátt.
- Hægt er að láta kortið ganga upp í lengri kort á fyrstu tveimur vikum eftir að námskeiðið hefst.
Hægt er að nýta frístundastyrki allra bæjarfélaga höfuðborgarsvæðisins upp í æfingagjöldin.
- Námskeiðsgjaldið fæst ekki endurgreitt.

 

Skráning

Með því að senda inn skráningu þína staðfestir þú að þú viljir byrja í Boot Camp. Eftir að þú hefur fengið staðfestingu senda frá okkur um að skráning þín sé móttekin hefur þú skuldbundið þig að byrja á námskeiðinu. Afskráningargjald eftir þann tíma eru 1.500 krónur auk innheimtukostnaðar (300 kr) sem eru innheimtar með greiðsluseðli.



Með því að haka við neðangreindan reit lýsi ég yfir því að ég hef kynnt mér allar nauðsynlegar upplýsingar um Boot Camp æfingarnar og staðfesti að ég geri mér fulla grein fyrir því að þær fela í sér mikið líkamlegt erfiði. Ég lýsi því ennfremur yfir að ég tel mig í nægilega góðu líkamlegu og andlegu ástandi til þess að taka þátt í námskeiðum Boot Camp. Ég geri það á eigin ábyrgð. Sem þátttakandi afsala ég mér öllum rétti til að krefjast skaðabóta frá Bootcamp ehf. eða þjálfurum Boot Camp vegna meiðsla, veikinda eða slyss sem ég gæti orðið fyrir á æfingum.



 
 

Deildu þessu með vinum þínum:

spotlight

Láttu slag standa!Þú sérð ekki eftir því!

Vinsælt:

Stundatafla
Verðskrá
Spurt og svarað

Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn 



Núverandi BC námskeið: 

26. mars - 6. maí

Næstu BC námskeið:

4. júní - 15. júlí
16. júlí - 26. ágúst
10. september - 21. október

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sumartilboð.

 

Skæruliðanámskeið:

4. júní - 9. september