Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir - BIS
Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Boot Camp

Þetta er námskeiðið sem Boot Camp ævintýrið hófst með og þú hefur heyrt talað svo mikið um. Námskeiðin eru sett upp 6 vikna löng en þau eru keyrð samfleytt allan ársins hring svo þú getur æft hjá okkur eins lengi og þú vilt án þess að upplifa sömu æfinguna tvisvar. Æfingarnar eru krefjandi og skemmtilegar og árangurinn lætur ekki á sér standa. Það er árangurinn og sú staðreynd að það er gaman að æfa í Boot Camp sem flestir tala um. Í Boot Camp mætirðu á æfingar 3-4 sinnum í viku þar sem hver tími er sigur og markmiðið er að taka stöðugum framförum á sama tíma og þú skemmtir þér vel í góðum félagsskap. Samkvæmt þeim þúsundum sem hafa æft hjá okkur er þetta árangursríkasta og skemmtilegasta líkamsþjálfun sem í boði er! Númer hópa (1-12) eru til að aðgreina þá í stundaskrá en tákna ekki erfiðleikastig svo þú velur þann hóp sem hentar þér best. Sýndu hvað í þér býr og skráðu þig!


Stundaskrá (4. júní - 9. september)

Hópar Tímar
Hópur 1
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 06:30
Hópur 2
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 07:30
Hópur 3 Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 08:30
Hópur 4
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 12:00
Hópur 5
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 16:00
Hópur 6
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 17:00
Hópur 7
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 18:00
Hópur 8
Þriðjudagar og fimmtudagar kl 06:15, laugardagar kl 09:00
Hópur 9
Þriðjudagar og fimmtudagar kl 07:15, laugardagar kl 09:00
Hópur 10
Þriðjudagar og fimmtudagar kl 11:45 (45 mín), laugardagar kl 09:00
Hópur 11 Þriðjudagar og fimmtudagar kl 17:15, laugardagar kl 09:00
Hópur 12 Þriðjudagar og fimmtudagar kl 18:15, laugardagar kl 09:00

Innifalið á námskeiði

- Þrjár Boot Camp æfingar á viku
- Tveggja tíma útiæfing fyrsta laugardag hvers mánaðar
- Aðgangur að æfingaastöðu
- Líkamsmæling við upphaf og lok námskeiða
- Mataráætlun og matardagbók sem hægt er að skila inn
- Ráðgjöf frá þjálfurum um æfingar, mataræði o.fl.
 


Verðskrá (4. júní - 9. september)

Tegund korta
Almennt verð
m/skólaafslætti
Sumartilboð (gildir 4.júní-9.sept) 29.500
29.500
6 vikna námskeið 22.500 19.000
12 vikna námskeið 38.500
32.500
6 mánuðir (4 námskeið) 58.500
49.500
Árskort
88.500
75.000
Gullkort (gildir í bæði Boot Camp og CrossFit) 150.000
135.000
Prufutími (gengur upp í kort)
2.000
2.000

Skilmálar um greiðslur

- Greiða þarf allt gjaldið af sumartilboði, 6 vikna og 12 vikna kortum áður en námskeiðið hefst.
- Fáðu upplýsingar í afgreiðslu um greiðsluskilyrði á 6 mánaða og árskorti.
- Sýna þarf gilt skólaskírteini eða aðra staðfestingu á skólavist til að fá skólaafslátt.
- Hægt er að láta kortið ganga upp í lengri kort á fyrstu tveimur vikum eftir að námskeiðið hefst.
Hægt er að nýta frístundastyrki allra bæjarfélaga höfuðborgarsvæðisins upp í æfingagjöldin.
- Námskeiðsgjaldið fæst ekki endurgreitt.

 

Skráning


Með því að senda inn skráningu þína staðfestir þú að þú viljir byrja í Boot Camp. Eftir að þú hefur fengið staðfestingu senda frá okkur um að skráning þín sé móttekin hefur þú skuldbundið þig að byrja á námskeiðinu. Afskráningargjald eftir þann tíma eru 1.500 krónur auk innheimtukostnaðar (300 kr) sem eru innheimtar með greiðsluseðli.



Með því að haka við neðangreindan reit lýsi ég yfir því að ég hef kynnt mér allar nauðsynlegar upplýsingar um Boot Camp æfingarnar og staðfesti að ég geri mér fulla grein fyrir því að þær fela í sér mikið líkamlegt erfiði. Ég lýsi því ennfremur yfir að ég tel mig í nægilega góðu líkamlegu og andlegu ástandi til þess að taka þátt í námskeiðum Boot Camp. Ég geri það á eigin ábyrgð. Sem þátttakandi afsala ég mér öllum rétti til að krefjast skaðabóta frá Bootcamp ehf. eða þjálfurum Boot Camp vegna meiðsla, veikinda eða slyss sem ég gæti orðið fyrir á æfingum.


 
 

Deildu þessu með vinum þínum:

spotlight

Láttu slag standa!Þú sérð ekki eftir því!

Vinsælt:

Stundatafla
Verðskrá
Spurt og svarað

Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn 



Núverandi BC námskeið: 

26. mars - 6. maí

Næstu BC námskeið:

4. júní - 15. júlí
16. júlí - 26. ágúst
10. september - 21. október

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sumartilboð.

 

Skæruliðanámskeið:

4. júní - 9. september