Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.

BC Grænjaxlar
Erfiðasta skrefið fyrir marga er að taka af skarið og skrá sig í Boot Camp þó að viljinn sé til staðar. Grænjaxlanámskeiðin eru sniðin fyrir þá en það eru Boot Camp námskeið fyrir fólk sem t.d. hefur ekki hreyft sig í lengri tíma og kýs lengri aðlögunartíma áður en farið af stað á hefðbundið námskeið. Einnig eru Grænjaxlanámskeiðin hentugur kostur fyrir þá sem eru að koma til baka úr meiðslum eða af einhverjum ástæðum vill byrja aðeins hægar.
Ef þú heldur að þú þurfir að koma þér í form áður en þú skráir þig í Boot Camp þá eru Grænjaxlarnir lausnin! Það er ekki þar með sagt að æfingarnar séu auðveldar - síður en svo, en farið er hægar í sakirnar svo fólk nær góðum tökum á helstu grunnæfingum ásamt því að byggja upp grunnstyrk, þol og sjálfstraust. Einnig er lagt mikið upp úr fræðslu um heilbrigðan lífsstíl hvað varðar mataræði og hreyfingu í daglegu lífi.
Þátttakendur geta skipt yfir í aðra Boot Camp hópa um leið og þeir treysta sér til, hvenær sem er á námskeiðinu og eru þjálfararnir duglegir að hvetja einstaklinga til þess. Þeir sem kjósa að klára allt námskeiðið í Grænjaxlahóp eða vera jafnvel lengur en eitt námskeið er það auðvitað frjálst, hver og einn skiptir þegar honum sýnist.
Ef þig langar að breyta um lífsstíl til hins betra og vera í hóp með miklum anda þá erum að gera að taka fyrsta skrefið og skrá sig!
Stundaskrá (4. júní - 9. september)
| Hópar | Tímar |
|---|---|
| Grænjaxlar 1 | Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl 16:00 |
| Grænjaxlar 2 | Þriðjudagar og fimmtudagar kl 07:00, laugardagar kl 09:00 |
| Grænjaxlar 3 | Þriðjudagar og fimmtudagar kl 17:15, laugardagar kl 09:00 |
| Grænjaxlar 4 | Þriðjudagar og fimmtudagar kl 18:15, laugardagar kl 09:00 |
Innifalið á námskeiði
Verðskrá (4. júní - 9. september)
| Tegund korta |
Almennt verð |
Með skólaafslætti |
|---|---|---|
| Sumartilboð (gildir 4.júní-9.sept) | 29.500 |
29.500 |
| 6 vikna námskeið | 22.500 | 19.000 |
| 12 vikna námskeið | 38.500 |
32.500 |
| 6 mánuðir (4 námskeið) | 58.500 |
49.500 |
| Árskort |
88.500 |
75.000 |
| Prufutími (gengur upp í kort) |
2.000 |
2.000 |
Skilmálar um greiðslur:
- Fáðu upplýsingar í afgreiðslu um greiðsluskilyrði á 6 mánaða og árskorti.
- Sýna þarf gilt skólaskírteini eða aðra staðfestingu á skólavist til að fá skólaafslátt.
- Hægt er að láta kortið ganga upp í lengri kort á fyrstu tveimur vikum eftir að námskeiðið hefst.
- Hægt er að nýta frístundastyrki allra bæjarfélaga höfuðborgarsvæðisins upp í æfingagjöldin.
Skráning
Vinsælt:
Stundatafla
Verðskrá
Spurt og svarað
Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn
Núverandi BC námskeið:
26. mars - 6. maí
Næstu BC námskeið:
4. júní - 15. júlí
16. júlí - 26. ágúst
10. september - 21. október
Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sumartilboð.
Skæruliðanámskeið:
4. júní - 9. september



