Loka
Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Námskeiðið er byggt upp á annan hátt og Hell Weekend sem er þó fyrirmyndin. Þar er álaginu dreift á lengri tíma og tæknileg þjálfun s.s. köfun, landfræði, klettasig o.fl. er kennt í bland við líkamlegt erfiði. Í Boot Camp áskoruninni færðu hins vegar svar við spurningunni: Er ég í nógu góðu formi til að þrauka þetta? Formið er þó ekki það eina sem kemur þér í gegnum þessa stífu 18 tíma heldur þarf einnig sterkan vilja og hugarfar sigurvegara.
Við munum reyna á þig til hins ýtrasta og þú þarft að kafa djúpt í sjálfa/n þig til að finna úr hverju þú ert gerð/ur. Þetta er ævintýri sem allir hafa gott af því að spreyta sig á.
