Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir - BIS
Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Um Boot Camp

Boot Camp námskeiðin fóru af stað haustið 2004. Það voru 20 djarfir einstaklingar sem skráðu sig á fyrsta námskeiðið og það leið ekki á löngu þar til hróður þeirra spurðist út. Í dag eru að jafnaði 1000 manns sem stunda æfingarnar reglubundið og fleiri þúsundir hafa sótt námskeiðin í gegnum árin.

Boot Camp nafnið varð til árið 2002 þegar Arnaldur Birgir Konráðsson fékk einkaleyfi af nafninu í tengslum við sjónvarpsþætti sem hann hafði þá þegar samið handrit að. Ekkert varð úr þáttunum á þeim tíma og fékk nafnið þess í stað notkun þegar námskeiðin hófust. Bootcamp ehf. var stofnað til að sjá um rekstur námskeiðanna og annað sem tengist Boot Camp nafninu og er í eigu Arnalds Birgis og Róberts Traustasonar. Bootcamp ehf. er með höfuðstöðvar sínar á Suðurlandsbraut 6b, 108 Reykjavík.

Í dag er Boot Camp kennt víða á landinu; á Akranesi, Bifröst, Hellu, í Hveragerði, á Hvolsvelli, í Kaupmannahöfn, á Selfossi og í Reykjavík. Allir þjálfarar hafa sótt sérstakt Boot Camp þjálfaranámskeið hjá höfuðstöðvunum í Reykjavík og því eru tímarnir kenndir eftir sömu hugmyndafræði og aðferð hvert sem farið er. Hvert útibú er rekið sjálfstætt en gott samstarf er á milli þeirra og fara kennarar og iðkendur oft í heimsóknir á milli staða og taka æfingar.

Deildu þessu með vinum þínum:

spotlight

Láttu slag standa!Þú sérð ekki eftir því!

Vinsælt:

Stundaskrá
Verðskrá
Spurt og svarað
Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn 



Núverandi BC námskeið: 

2. janúar - 12. febrúar

Næstu BC námskeið:

13. febrúar - 25. mars
26.mars - 6. maí

Skæruliðanámskeið:

9. janúar - 6. maí

(Skæruliðar 4:
22.janúar - 29.apríl)