Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Flýtileiðir


Næstu námskeið

Boot Camp trailer


 

Róbert Traustason

Rekstrarstjóri og þjálfari
Sími: 898-8004
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  


Róbert er stofnandi og annar eiganda Boot Camp. Hann sá alfarið um þjálfun Boot Camp námskeiðanna þegar þau hófu göngu sína haustið 2004 og hefur hefur fylgt þeim eftir frá upphafi. Árið 2003 lauk hann einkaþjálfaraprófi frá ISSA (International Sports Sciences Association) og starfaði sem einkaþjálfari samhliða Boot Camp fyrsta árið.

Í september 2006 sótti Róbert námskeið hjá sérsveitarmönnum bandaríska sjóhersins, svokölluðum Navy SEALs. Æfingabúðirnar voru vikulangar og komu honum í kynni við nokkra af fremstu þjálfurum á því sviði vestanhafs. Svo vel heppnaðist að í maí 2007 fékk Boot Camp þrjá þessara sérsveitarmanna hingað til lands og héldu þeir 40 klukkustunda langt námskeið fyrir almenning sem vildi fá smjörþef í þjálfun þessara sveita. Niðurstaðan var sú að yfirleiðbeinandi hópsins sagðist aldrei á 10 ára ferli sínum hafa séð jafn vel þjálfan hóp almennings, en allir nema tveir þátttakendur námskeiðsins voru meðlimir Boot Camp.

Róbert hefur beitt sér til stuðnings ýmissa góðgerðarverkefna. Ásamt Birgi hjólaði hann árið 2005 í einni lotu 410 km yfir hálendið frá Reykjavík til Akureyrar til styrktar ungri krabbameinssjúkri stúlku og árið 2006 hljóp hann 100 kílómetra viðstöðulaust frá Hellu til Reykjavíkur til styrktar samtökunum Blátt áfram.

Róbert hefur tekið þátt í fjölda þrekkeppna síðastliðin 8 ár og sigrað allmörg mót með liði sínu. Hann stýrir einnig knattspyrnuliði Boot Camp í Carlsbergdeildinni sem hefur sigrað 5 titla á 4 árum.

Róbert skrifaði bókina Boot Camp - Grunnþjálfun ásamt Birgi sem JPV forlag gaf út árið 2007. Önnur bók þeirra félaga er væntanlegavorið 2010.

Haustið 2009 sótti hann námskeið hjá Steve Maxwell og er nú með réttindi frá Maxwell sem þjálfari í æfingum með líkamsþyngd (bodyweight) og ketilbjölluþjálfari (kettlebells).