Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Flýtileiðir


Næstu námskeið

Boot Camp trailer


 

Atli Sigurjónsson

Þjálfari
Sími: 865-2000
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  


Atli var fyrsti þjálfari til að bætast í hópinn með Birgi og Róbert og hefur þjálfað reglubundið frá árinu 2005. Atli lauk Boot Camp þjálfaranámskeiðinu en hafði einnig sjálfur verið með fyrstu aðilum sem sóttu námskeiðið og hefur því upplifað það frá báðum endum.

Atli er þekktur fyrir mjög fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar og er mjög iðinn við að koma með nýjungar úr þjálfun ýmissa íþróttagreina. Hann sá um rekstur Boot Camp námskeiðanna sem voru haldin í íþróttahúsi Háskóla Íslands veturinn 2006-2007 og náði frábærum árangri með nemendur og starfsfólk þar.

Atli lauk B.Sc. í lyfjafræði frá HÍ árið 2007 og Meistaranámi í sama fagi vorið 2009. Hann starfar því í dag sem lyfjafræðingur samhliða Boot Camp þjálfuninni. Áhugi hans  og menntun á því sviði hefur nýst honum vel þegar kemur að fæðubótarefnum og næringu þar sem Atli hefur yfir mikilli þekkingu að ráða.

Atli hefur sjálfur gaman af því að reyna á þolmörk sín. Hann hefur sjálfur keppt þrívegis í Þrekmeistaranum og sigraði í hópakeppni karla haustið 2007. Auk þess kláraði hann Hell Weekend námskeiðið sem haldið var hérlendis sumarið 2007 þar sem Navy SEALs þjálfarar reyndu á hann.


Aftur á þjálfarasíðu