Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
Þjálfari - Austurlandi
Sími: 847-3100
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þórdís hefur góðan grunn úr hinum ýmsum íþróttagreinum. Hún æfði fótbolta í fjölda ára, æfði skíði á yngri árum ásamt því að prufa eins margar greinar og hún gat s.s. sund, frjálsar íþróttir og handbolta.
Þórdís Mjöll byrjaði að stunda Boot Camp árið 2007 þar sem hún náði mjög góðum árangri og fékk Boot Camp bakteríuna beint í æð.
Í september 2009 lauk hún Boot Camp þjálfaranámskeiði og öðlaðist þar með réttindi til að þjálfa samkvæmt Boot Camp aðferðafræðinni.
Í dag starfar hún sem leikskólakennari í
leikskólanum Dalborg á Eskifirði, er í mastersnámi við Háskóla Akureyrar og
þjálfar Boot Camp á Austurlandi ásamt Jóhönnu þar sem reynsla hennar af börnum hjálpa
henni við að halda góðum aga á Boot Cömpurum Austurlands.

