Evrópumeistarar í Boot Camp
Fimmtudagur, 13. maí 2010 08:49
Um síðustu helgi hélt 11 manna hópur frá Boot Camp til Halmstad í Svíþjóð til að keppa í Evrópuleikum Crossfit. 5 snillingar tóku þátt í einstaklingskeppninni, þau Annie Mist Þórisdóttir, Elvar Þór Karlsson, Jenný Magnúsdóttir, Ómar "Ómar" Ágústsson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson en auk þeirra átti Boot Camp fulltrúa í liðakeppninni.
Keppt var í 5 greinum í einstaklingskeppninni á tveimur dögum. Eftir fyrri daginn voru Sveinbjörn og Annie í efstu sætunum og Elvar og Jenný voru bæði í topp 5. Allir fulltrúar Boot Camp (og Íslands!) stóðu sig eins og hetjur og að leikunum loknum var það ljóst að af þeim 6 einstaklingum sem unnu sér inn þátttökurétt á heimsleikunum í Bandaríkjunum í júlí átti Boot Camp 3 þeirra, þau Annie Mist, Sveinbjörn og Jenný.
Í liðakeppninni var aðeins eitt annað lið í Evrópu sem þorði að keppa við lið Boot Camp og það kom einnig frá Íslandi! Það sannar enn og aftur að það eru fáir sem þora í íslensku víkingana sem er svo sem alveg skiljanlegt. Eftir helgina var það lið Boot Camp sem sigraði og vann sér þ.a.l. sömuleiðis inn þátttökurétt á heimsleikunum í júlí.
Myndir væntanlegar hérna og á Facebook síðu Boot Camp.