Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Flýtileiðir


Næstu námskeið

Boot Camp trailer


 

Fréttamolar

Nýliðafundur á laugardaginn

Kynningarfundur fyrir alla nýliða verður haldinn á Suðurlandsbrautinni laugardaginn 2. janúar kl 12:00. Fundurinn gefur þeim sem byrja á sínu fyrsta Boot Camp námskeiði í janúar tækifæri til að sjá aðstæður, hitta þjálfara og fá svör við helstu spurningum áður en gleðin byrjar. Mættu tímanlega því eins og reglan er á æfingum þá byrjum við ávallt á slaginu.

Öllum skráningum verður svarað fyrir þann tíma og vonandi náum við að koma öllum fyrir en þéttskipað verður í langflesta hópa á janúarnámskeiðinu.

Hægt er að skrá sig hér.

Sjáumst á laugardaginn!



 

Gleðilegt nýtt ár!

Boot Camp vill óska öllum Boot Cömpurum nær og fjær gleðilegs nýs árs og megi árið 2010 verða gæfu- og heilsuríkt fyrir ykkur öll.

Það voru ótal afrek sem náðust á þessu ári, svo mörg að ómögulegt er að telja þó ekki væri nema hluta þeirra upp. Við hvetjum ykkur til að halda áfram að setja markið hátt núna á nýju ári og vinna síðan hörðum höndum við að ná þeim markmiðum sem sett verða (og umfram þau!).

Nýtt Boot Camp ár byrjar strax á mánudaginn og hlökkum við til að sjá þig á æfingu, hvar sem er á landinu!

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!

 

Gleðileg jól!

Á laugardaginn fór fram jólagleði Boot Camp sem markar lok þessa æfingaárs.

Dagurinn byrjaði á tveggja tíma æfingu og síðan tók við jólakeppni Boot Camp þar sem fólk getur spreytt sig sín á milli í nokkrum af þeim æfingum sem búið er að þjálfa á árinu. 

Efstu sætin í hverjum flokki skipuðu:

Stelpur
1. Annie
2. Ásta Ósk
3. Hjördís

Strákar
1. Sveinbjörn
2. Ómar
3. Elvar

Lávarðar (39+)
1. Stefán
2. Þorkell
3. Pétur

Að keppninni lokinni tók við innpökkun jólagjafa og voru ca. 600 pakkar afhentir Mæðrastyrksnefnd sama dag. Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg kærlega fyrir og þið getið verið viss um að það verða margir þakklátir um jólin.

Hér er stutt myndband frá þessum skemmtilega degi sem okkar eini Drengsson gerði:

JavaScript is disabled!
To display this content, you need a JavaScript capable browser.

Þar með er þessu Boot Camp æfingaári lokið, skráningar á janúarnámskeiðin eru í fullum gangi en þau byrja 4. jan um allt land.

GLEÐILEG JÓL!!!

Jólagleði Boot Camp 2009

Laugardaginn 19. desember verður hin árlega jólagleði Boot Camp haldin en hún markar einnig lok æfingaársins hjá Boot Camp þegar síðasta námskeiði ársins lýkur.

Dagskráin er svohljóðandi:

Kl 09:00-11:00 - Útiæfing
Síðasta æfing ársins sem öllum Boot Camp meðlimum er frjálst að mæta á. Æfingin fer fram á Suðurlandsbrautinni og verður bæði innandyra og úti.

Kl 12:00-14:00 - Jólakeppnin 2009
Jólakeppni Boot Camp. Keppnin verður eins og fyrr tilkynnt keppendum rétt áður en hún fer fram en undirbúningur hefur verið í gangi á Boot Camp æfingum allt árið svo þetta er eitthvað sem enginn Boot Campari þarf að óttast.

Kl 14:00-16:00 - Jólagleðin 2009
Jólagleði Boot Camp. Boot Camp leggur til fjölda jólagjafa og innpökkunarefni svo hægt sé að afhenda Mæðrastyrksnefnd til úthlutunar fyrir jólin. Allir hjartanlega velkomnir og að sjálfsögðu er ekki verra (en engin skylda!) að mæta með einn pakka með sér. Fullfrísk stendur fyrir fatasöfnun (fyrir 0-15 ára) á sama tíma og verður sá fatnaður sem safnast einnig gefinn til Mæðrastyrksnefndar eftir hreinsun. Jólasveinninn mætir á staðinn, Boot Camp jólahljómsveitin stígur á stokk, kökur, kakó og mikil jólastemmning. Það er ekki hægt að koma sér í betra jólaskap heldur en með þessu!

Við vonumst til að sjá alla Boot Campara kíkja á svæðið og kveðja árið með stæl með okkur.

 

Ennþá langt til jóla

Þá eru 4 vikur eftir af Boot Camp æfingum til jóla. Það er því enn nægur tími til að koma sér í gott stand fyrir jólin og gera þau enn ánægjulegri fyrir vikið.

Jólin þurfa ekki að vera tími þar sem allt form fer til fjandans og smákökurnar taka öll völd. Mikilvægt er að halda sér góðri/góðum og í hefðbundinni rútínu í mataræði og æfingum alveg til jóla. Með því að gera það er hægt að njóta þeirra með góðri samvisku þessa örfáu daga sem jólin vara í raun. Jólin eru ekki 4-6 vikur af sukki! Það er tvennt í boði:

a)  að æfa og bæta form sitt svo þú getur virkilega notið þessara 13 jóladaga (Boot Camparar fá að sjálfsögðu æfingar til að gera sjálfir í jólafríinu)

b)  tekið mánuð í jólafrí sem skilar sér í verstu þynnku sögunnar (í formi janúarmánaðar í engu formi)

Þú getur skráð þig á jólanámskeiðið og tekið 2-4 vikur til jóla með mælingum í upphafi og lok tímabilsins. Með því móti ertu með aðhald allan desembermánuð og getur átt gleðilegri jól (og janúar!) en nokkru sinni fyrr!

Skráðu þig hér.