25. október - 4. desember
Skráningar hefjast 4. október
Boot Camp trailer
Fréttamolar
Boot Camp keppnin 2009
Þriðjudagur, 01. september 2009 12:41
Það voru rúmlega 150 keppendur sem mættu á íþróttavöllinn að Varmá í gær til að taka þátt í Boot Camp keppninni 2009. Keppnin er hluti af Þrekmótaröðinni sem samanstendur af fjórum
mismunandi keppnum og var Boot Camp keppnin sú þriðja í mótaröðinni en
áður hafa farið fram Lífsstílsmeistarinn og Crossfitleikarnir.
Þrekmótaröðinni lýkur síðan með Þrekmeistaranum á Akureyri í nóvember.
Það var blíðskaparveður í Mosfellsbænum í gær þegar keppnin fór fram.
Keppt var í fjórum flokkum; einstaklingskeppni karla og kvenna og
liðakeppni karla og kvenna. Það voru karlarnir sem riðu á vaðið en 33
voru skráðir í einstaklingsflokkinn. Þurftu þeir að ljúka braut sem
samanstóð af 2km hlaupi, armbeygjum, hnébeygjum, froskahoppum og
uppsetum ásamt klassískri bóndagöngu. Það var mjótt á munum en
sigurvegarinn var Sigurgeir Andrésson úr Boot Camp sem kláraði erfiða
brautina fyrstur allra á rúmum 25 mínútum. Ásmundur Ísak Jónsson,
einnig úr Boot Camp átti bestan tíma karla 39 ára og eldri.
Í kvennaflokki sigraði Annie Mist Þórisdóttir en 29 keppendur þar
þurftu einnig að ljúka 2km hlaupi ásamt axlapressu, froskum, uppstigi,
uppsetum og loks bóndagöngunni. Með sigrinum tryggði Annie sér titilinn meistari Þrekmótaraðarinnar árið 2009 en áður hafði hún unnið Lífsstílsmeistarann og Crossfitleikana og er því með fullt hús stiga fyrir síðasta mótið. Til hamingju með titilinn Annie!!! Það var síðan Steinunn Linda Jónsdóttir frá Crossfit Iceland sem sigraði í
flokki kvenna 39 ára og eldri.
Í liðakeppni karla voru það 5tindar sem sigruðu í karlaflokki en
keppnin reyndi mikið á liðsheildina. M.a. þurftu liðsmenn að halda
saman á drumbi fyrir ofan höfuð á meðan einn úr liðinu kláraði
upphífingar, japanskar skúringar og spretthlaup svo eitthvað sé nefnt.
Þeir félagar hafa æft og keppt lengi saman og tókst að ljúka brautinni
á skemmstum tíma af þeim 9 liðum sem tóku þátt. Í kvennaflokki tóku 10
lið þátt og voru það Boot Camp Wonder sem sigruðu með nokkrum
yfirburðum en þær komu hlaupandi með drumbinn sinn brosandi yfir
marklínuna.
G.I.Jane námskeið Boot Camp byrja aftur af fullum krafti í haust, þann 14. september.
Því miður hefur ekki verið pláss í stundatöflunni fyrir þessa tíma
að undanförnu en það verður breyting á því í haust þegar þessir tímar
fara aftur af stað og gefst því konum kostur á að mæta í Boot Camp
eingöngu með öðrum konum undir handleiðslu Boot Camp þjálfara. G.I.Jane
námskeiðið verður eingöngu kennt í húsnæði StudioFitt að Seljavegi (www.studiofitt.is).
Æfingarnar verða því sérhannaðar með þarfir kvenna í huga og henta
öllum konum, hvort sem þær eru í góðri þjálfun eða eru að koma sér af
stað í hreyfingu.
Allar upplýsingar um námskeiðið verða komnar hingað inn von bráðar.
Skráningum í Boot Camp keppni að ljúka!
Föstudagur, 14. ágúst 2009 12:38
Síðasti dagur til að skrá sig í Boot Camp keppnina er á miðnætti á sunnudaginn kemur, þann 16. ágúst.
Greiðsla fyrir keppnisgjaldinu þarf að hafa borist í síðasta lagi
22. ágúst sem er vika fyrir keppni. Nú er bara um að gera að taka loks
af skarið, skrá sig til leiks og sanna fyrir sjálfum/sjálfri sér að
þetta sé vel hægt!
Það verða flottir vinningar í boði fyrir efstu sætin, margt annað
skemmtilegt í gangi fyrir áhorfendur svo ekki sé talað um sjálfa
keppnina sem verður án efa mjög spennandi.