Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Flýtileiðir


Næstu námskeið

Boot Camp trailer


 

Fréttamolar

Boot Camp keppnin 2010

Þá hefur Boot Camp keppnin 2010 verið tilkynnt en hún verður haldin að íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ laugardaginn 28. ágúst.

Um er að ræða keppni í Intersport Þrekmótaröðinni og gefur hún því stig í stigakeppni ársins um hver verður sigurvegari Þrekmótaraðarinnar. Keppt verður í einstaklingskeppni karla og kvenna (almennur flokkur og 39 ára og eldri), parakeppni (einn karl og ein kona) og síðan í liðakeppni karla og kvenna (5 liðsmenn í hverju liði).

Það er um að gera að kynna sér keppnina og skrá sig til leiks, hvort sem þú hefur keppt í svona þrekmóti áður eða ekki. Þetta er einstök upplifun sem byggir hvern þann upp sem tekur þátt og nýtist í framtíðinni hvort sem viðkemur æfingum eða jafnvel annars konar keppnum.

Á sama tíma heldur Boot Camp sína árlegu sumarhátíð sem allir eru velkomnir á og er þá nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna og verður hún á sama svæði og keppnin. Um kvöldið verður síðan stórskemmtilegt ball með sérstakri heiðurshljómsveit Boot Camp hljómlistarmanna.

Smelltu á viðeigandi tengla til að nálgast frekari upplýsingar um þennan viðburð:
Keppnin
Keppnisgreinar
Upplýsingar
Skráning

EKKI MISSA AF SKEMMTILEGUSTU KEPPNI ÁRSINS! Þessi einstaka keppni verður eingöngu einu sinni í þessari mynd því Boot Camp keppnirnar taka breytingum frá hverri keppni til þeirrar næstu!

 

Björgunarsveit í fantaformi

Í júní síðastliðnum skellti hópur frá Hjálparsveit Skáta í Garðabæ sér á Hrútfjallstinda. Og hvernig tengist það Boot Camp? Jú, sveitin hefur stundað æfingar í Boot Camp Outsiders hópnum í vetur til að vera enn betur í stakk búin að takast á við hin fjölmörgu og fjölbreyttu útköll sem sveitinni berast.

Þrisvar sinnum í viku mætir hópurinn á stífar æfingar sem haldnar eru utandyra víðs vegar um höfuðborgarsvæðið hvernig sem viðrar. Þessir fórnfúsu einstaklingar hafa náð gríðarlegum árangri og kalla ekkert ömmu sína (nema þá kannski ömmur sínar!). Ef svo óheppilega vill til að þú lendir í vanda og Hjálparsveit skáta í Garðabæ sinnir kallinu máttu vera viss um að það er ein fær og hörð sveit á ferðinni. Boot Camp er stolt að tengjast svona mögnuðum hópi einstaklinga.

Hér má sjá hluta hópsins stilla sér uppi á Hrútfjallstindi eftir "léttan" göngutúr:

 

BC sannar sig á heimsleikum Crossfit

Boot Camparar víðs vegar gátu verið stoltir af sínu fólki um helgina en þau Annie Mist Þórisdóttir og Sveinbjörn Sveinbjörnsson voru mætt í Home Depot Center í Carson, Kaliforníu til að taka þátt í heimsleikum Crossfit. Þau höfðu unnið sér inn þátttökurétt í þessari keppni með því að sigra (Annie) og lenda í öðru sæti (Sveinbjörn) í undankeppninni sem haldin var í Svíþjóð í byrjun sumars.

Þetta var því annað árið í röð sem þessir krakkar komast á þetta stórmót en þau komust bæði óvænt inn í fyrra og vöktu athygli með frammistöðu sinni í greinunum, mörgum sem þau höfðu ekki einu sinni prófað áður! Þau höfðu því nýtt árið vel í að vinna í veikleikum sínum og læra þau tækniatriði sem þurftu að vera á hreinu þetta árið.

Í keppninni, sem stóð frá föstudegi til sunnudags, kepptu þau gegn 50 hörðustu einstaklingunum í þessu sporti og stóðu sig að vanda landi og þjóð til sóma. Fyrsta greinin þeirra var einmitt æfingin sem varð þeim að falli í fyrra og sýndu þau að þau höfðu heldur betur lært þá grein en að þessu sinni þurftu það að framkvæma hana 21 sinni. Á laugardeginum kepptu þau síðan í þremur greinum en keppendur fengu að vita hverjar greinarnar voru aðeins klukkutíma áður en þau áttu að takast á við þær.

Eftir laugardaginn var fjöldi keppenda skorinn niður og aðeins 24 efstu karlarnir og konurnar fengu að keppa á sunnudeginum. Annie var meðal þeirra en eftir síðustu greinina á laugardeginum, sem var sandpokahlaup, var hún í efsta sætinu! Sveinbirni gekk ekki eins vel gegn hrikalega öflugum einstaklingum og datt því út eftir fjórðu greinina. Hann endaði í fertugasta sæti sem verður að teljast gott þegar litið er til að þúsundir manna reyndu að komast þangað þótt hann vildi eflaust enda ofar.

Annie hélt áfram að keppa á sunnudeginum og barðist við öfluga stelpu frá Bandaríkjunum um toppsætið til loka. Það vantaði aðeins örlítið upp á í lokin að Annie næði toppsætinu en hún endaði í öðru sæti sem er frábær frammistaða hjá þessari tvítugu stelpu. Hún hefur aðeins æft þessar greinar núna í rúmt ár og má því búast við miklu af henni á næstu árum ef hún heldur áfram að æfa og bæta sig í þessu eins og hún hefur gert hingað til.

Fyrir frekari upplýsingar um keppnina, greinarnar og úrslitin má benda á opinbera síðu keppninnar: games.crossfit.com

Ennig er hægt er að sjá upptökur frá keppninni á síðunni live.crossfit.com.


Annie berst við Kristan Clever í síðustu þrautinni


Annie brosandi í sandpokaþrautinni sem hún vann.

Til heljar og aftur til baka

Það voru 44 einstaklingar sem mættu vígreifir til leiks að höfuðstöðvum Boot Camp föstudagskvöldið 9. júlí. Ástæðan var að þessir einstaklingar ætluðu að spreyta sig á Boot Camp áskoruninni sem fékk heitið Hell Day. Hell Day er byggt upp á álíka hátt og vikulangt inntökupróf sem Navy SEALs sérsveitirnar reiða sig á til að sía út þá sem eiga ekki erindi í sveitirnar og byggja upp sjálfstraust þeirra verðugu. Hell Day er 18 tíma útgáfa af þessu og var ekkert sparað í að gera þessa upplifun eins magnaða og mögulegt var fyrir þá sem þorðu að skrá sig.

Hópurinn var settur í gegnum ýmsar líkamlegar og andlegar áskoranir sem hver hafði ákveðinn tilgang og markmið. Þótt að þessi markmið væru ekki alltaf augljós sást að margir bitu hreinlega á jaxlinn og létu sig hafa hluti sem þeim hefði ekki órað fyrir að þau ættu eftir að gera aðeins nokkrum dögum fyrr.

Hvað það er sem er gert nákvæmlega í Hell Day er aðeins fyrir þá sem kláruðu að vita, en það var vissulega stoltur en jafnframt þreyttur hópur sem stóð uppi í lokin, hver og einn sigurvegari, sterkari og jákvæðnari einstaklingur en fyrir áskorunina.

Hér má sjá þennan magnaða hóp sem kallast "Hell Day 2010 árgangurinn":



  

Síðasti séns að skrá sig í Hell Day

Síðasti séns að skrá sig í Boot Camp áskorunina (Hell Day) er þessa helgi. Núna eru 40 þátttakendur skráðir til leiks og ljóst að um er að ræða öflugan og fjölbreyttan hóp sem á eftir að reyna á sig til hins ýtrasta.

Áskorunin verður ekki síður andleg sem líkamleg og þarf því meira en sterkan skrokk til að standast þetta þar sem hausinn þarf líka að vera sterkur og reiðubúinn í hörku átök. Af reynslu þeirra sem hafa klárað svona áskoranir áður er upplifunin samt alltaf sú sama: ótrúlegt stolt og rífandi sjálfstraust þar sem þér finnst þú geta tekist á við hvað sem er.

Ekki láta þig vanta í mestu skemmtun sem völ er á sumar. Fylltu út umsóknarformið og skráðu þig í dag... áður en það verður of seint!