Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Flýtileiðir


Næstu námskeið

Boot Camp trailer


 

Fréttamolar

Skráningar á sumarnámskeiðin hafin!

Þá eru skráningar á fyrsta sumarnámskeið Boot Camp hafnar. Úrval tíma hefur aldrei verið meira og eru núna útitímar í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl 06:15 og 18:15. Einnig er sumartilboðið okkar aftur í boði í ár en það var gríðarlega vinsælt í fyrra.
 

Nánar...

Boot Camp æfingabók

JPV útgáfa hefur sent frá sér bókina Boot Camp - Grunnþjálfun eftir Boot Camp þjálfarana Arnald Birgi Konráðsson og Róbert Traustason. Þetta er æfingabók byggð á æfingum Boot Camp sem meira en þúsund Íslendingar æfa að staðaldri. Bókin byggir ekki á neinum líkamsræktartækjum og því getur hver og einn stundað þær hvar og hvenær sem er.

Bókin gefur enn fleiri Íslendingum kost á að æfa í anda Boot Camp og hentar bæði byrjendum sem lengra komnum.

Í bókinni er að finna 12 vikna æfingaráætlun sem og þriggja vikna undirbúningsáætlun fyrir þá sem það þurfa, æfingar og teygjur eru útskýrðar í máli og myndum og einnig er farið yfir aðra þætti s.s. mataræði.

Bókin fæst í öllum bókabúðum, í verslunum Hagkaupa o.fl. vel völdum sölustöðum þ.á.m. í Boot Camp, Suðurlandsbraut.

Boot Camp flutt að Suðurlandsbraut 6b

Laugardaginn 10. febrúar 2007 flutti Boot Camp starfsemi sína úr Faxafeni 8 að Suðurlandsbraut 6b. Má þar með sanni segja að Boot Camp sé loks komið í eigið húsnæði en frá upphafi hafa námskeiðin verið kennd í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjavíkur.

Nánar...

Fréttir af flutningum

Breytingar á væntanlegu húsnæði Boot Camp við Suðurlandsbraut 6b ganga vel og er stefnt að því að taka húsið í notkun strax í upphafi næsta námskeiðs, eða mánudaginn 12. febrúar.
 

Nánar...

Síðasta útiæfing ársins

Á Þorláksmessu, laugardaginn 23. desember, var síðasta Boot Camp útiæfing ársins 2006 haldin. Var hún með öðruvísi sniði því þessi æfing fór fram að mestum hluta inni í verslun Intersport á Bíldshöfða. Fín mæting var á þessa æfingu og allir á eitt sáttir að hér hafi verið um að ræða mjög skemmtilega og öðruvísi æfingu.
 

Nánar...