Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Úrslit helgarinnar
Þriðjudagur, 10. nóvember 2009 07:53
Um helgina fór fram Þrekmeistarinn á Akureyri sem var jafnframt síðasta keppnin í fjórleiknum Þrekmótaröðin 2009. Eins og áður hefur komið fram er þrekmótaröðin samansafn af fjórum ólíkum þrekkeppnum þar sem sá sem hlýtur flest stig úr þremur bestu keppnum sínum stendur uppi sem Þrekmeistari ársins 2009.
Fyrir þessa lokakeppni voru meðlimir Boot Camp þegar búnir að tryggja sér fyrsta sæti í þeim fjórum flokkum sem keppt var í að þessu sinni; einstaklingsflokki karla og kvenna; og liðakeppni karla og kvenna. Það voru þau Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Annie Mist Þórisdóttir
sem sigruðu í einstaklingskeppni en BC Drumbar og BC Wonder sem sigruðu
liðakeppnina. Öll verðlaunin að þessu sinni fóru því til Boot Camp. Þrekmótaröðin
2010 byrjar svo með Lífsstílsmeistaranum sem verður haldinn í febrúar og ætla
Boot Camparar að leggja sig 100% fram við að ná öðrum eins frábærum árangri og
náðist þetta árið.
Annars voru tæplega 360 keppendur skráðir til leiks í Þrekmeistaranum að þessu sinni og þriðjungur keppenda kom frá Boot Camp æfingastöðvum víðs vegar um landið. Árangur þeirra var eins og svo oft áður alveg hreint frábær og bætti Sveinbjörn Sveinbjörnsson m.a. Íslandsmetið í einstaklingskeppni karla. Flestir voru þó að keppa þarna í fyrsta sinn og stóðu sig með þvílíkum sóma. Það verður því mjög spennandi að sjá hvernig þeim gengur næst því að klára þessa braut er afrek út af fyrir sig.
***ÚRSLIT ÞREKMEISTARANS 2009***
Einstaklingskeppni kvenna
1. Kristjana Hildur Gunnarsdóttir - Lífsstíl
2. Ingunn Lúðvíksdóttir - CrossfitSport
3. Ásta Ósk Stefánsdóttir - Boot Camp
Einstaklingskeppni kvenna 39+
1. Steinunn Linda Jónsdóttir - Crossfit Iceland
2. Þuríður Þorkelsdóttir - Lífsstíll
3. Ólafía Kvaran - Boot Camp
Einstaklingskeppni karla
1. Sveinbjörn Sveinbjörnsson - Boot Camp
2. Aðalsteinn Sigurkarlsson - Vaxtaræktin Akureyri
3. Jón Hjaltason - Vaxtaræktin Akureyri
Einstaklingskeppni karla 39+
1. Jón Hjaltason - Vaxtaræktin Akureyri
2. Þorsteinn Hjaltason - Vaxtaræktin Akureyri
3. Guðlaugur Aðalsteinsson - Vaxtaræktin Akureyri
Tvenndarkeppni
1. Lífsstílstvenna - Lífsstíll
2. Annie & Tobbi - Boot Camp / ÍR
3. Team Gústi and Hillary - Boot Camp
Liðakeppni kvenna
1. 5 fræknar - Lífsstíll
2. BC Wonder - Boot Camp
3. BC Súper - Boot Camp
Liðakeppni karla
1. Black Hawk Down - Boot Camp
2. BC Drumbar - Boot Camp
3. 5tindar - Boot Camp
***SIGURVEGARAR ÞREKMÓTARAÐARINNAR 2009***
Einstaklingskeppni kvenna
1. Annie Mist Þórisdóttir - Boot Camp
2. Kristjana Hildur Gunnarsdóttir - Lífsstíll
3. Ingunn Lúðvíksdóttir - CrossfitSport
Einstaklingskeppni karla
1. Sveinbjörn Sveinbjörnsson - Boot Camp
2. Elvar Þór Karlsson - Boot Camp
3. Vikar Sigurjónsson - Lífsstíll
Liðakeppni kvenna
1. BC Wonder - Boot Camp
2. 5 fræknar - Lífsstíll
3. BC Súper - Boot Camp
Liðakeppni karla
1. BC Drumbar - Boot Camp
2. 5tindar - Boot Camp
3. BC Megaliðið - Boot Camp

