Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Ennþá langt til jóla
Föstudagur, 20. nóvember 2009 09:30
Þá eru 4 vikur eftir af Boot Camp æfingum til jóla. Það er því enn nægur tími til að koma sér í gott stand fyrir jólin og gera þau enn ánægjulegri fyrir vikið.
Jólin þurfa ekki að vera tími þar sem allt form fer til fjandans og smákökurnar taka öll völd. Mikilvægt er að halda sér góðri/góðum og í hefðbundinni rútínu í mataræði og æfingum alveg til jóla. Með því að gera það er hægt að njóta þeirra með góðri samvisku þessa örfáu daga sem jólin vara í raun. Jólin eru ekki 4-6 vikur af sukki! Það er tvennt í boði:
a) að æfa og bæta form sitt svo þú getur virkilega notið þessara 13 jóladaga (Boot Camparar fá að sjálfsögðu æfingar til að gera sjálfir í jólafríinu)
b) tekið mánuð í jólafrí sem skilar sér í verstu þynnku sögunnar (í formi janúarmánaðar í engu formi)
Þú getur skráð þig á jólanámskeiðið og tekið 2-4 vikur til jóla með mælingum í upphafi og lok tímabilsins. Með því móti ertu með aðhald allan desembermánuð og getur átt gleðilegri jól (og janúar!) en nokkru sinni fyrr!
Skráðu þig hér.

