Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Jólagleði Boot Camp 2009
Fimmtudagur, 17. desember 2009 08:53
Laugardaginn 19. desember verður hin árlega jólagleði Boot Camp haldin en hún markar einnig lok æfingaársins hjá Boot Camp þegar síðasta námskeiði ársins lýkur.
Dagskráin er svohljóðandi:
Kl 09:00-11:00 - Útiæfing
Síðasta æfing ársins sem öllum Boot Camp meðlimum er frjálst að mæta á. Æfingin fer fram á Suðurlandsbrautinni og verður bæði innandyra og úti.
Kl 12:00-14:00 - Jólakeppnin 2009
Jólakeppni Boot Camp. Keppnin verður eins og fyrr tilkynnt keppendum rétt áður en hún fer fram en undirbúningur hefur verið í gangi á Boot Camp æfingum allt árið svo þetta er eitthvað sem enginn Boot Campari þarf að óttast.
Kl 14:00-16:00 - Jólagleðin 2009
Jólagleði Boot Camp. Boot Camp leggur til fjölda jólagjafa og innpökkunarefni svo hægt sé að afhenda Mæðrastyrksnefnd til úthlutunar fyrir jólin. Allir hjartanlega velkomnir og að sjálfsögðu er ekki verra (en engin skylda!) að mæta með einn pakka með sér. Fullfrísk stendur fyrir fatasöfnun (fyrir 0-15 ára) á sama tíma og verður sá fatnaður sem safnast einnig gefinn til Mæðrastyrksnefndar eftir hreinsun. Jólasveinninn mætir á staðinn, Boot Camp jólahljómsveitin stígur á stokk, kökur, kakó og mikil jólastemmning. Það er ekki hægt að koma sér í betra jólaskap heldur en með þessu!
Við vonumst til að sjá alla Boot Campara kíkja á svæðið og kveðja árið með stæl með okkur.

