Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Bjartir tímar framundan
Föstudagur, 12. febrúar 2010 10:26
Þá styttist óðum í vorið og skammdegið minnkar með hverjum deginum. Það verður margt í boði á þessu ári, fastir liðir eins og venjulega ásamt nýjum viðburðum.
Á Facebook síðu Boot Camp verður boðið upp á reglulegar áskoranir sem birtast sem update hjá aðdáendum síðunnar.
Margir viðburðir eru á dagskrá næstu mánuði og má meðal annars nefna:
- Inntökupróf í Boot Camp Elite
- Róðrakeppni BC. 500m, 2000m og 2000m parakeppni
- Lífsstílsmeistarinn. Fyrsta mótið í Þrekmótaröðinni 2010
- Vorfagnaður Boot Camp / 5 ára afmæli
- Hell Day - styttri útgáfa af Hell Weekend, upplýsingar koma inn fljótlega
- Fimmvörðuhálsferð Boot Camp
- Sumarhátíð Boot Camp
- Boot Camp Keppnin.
Listinn er ekki einu sinni tæmandi en þetta er meðal þess sem í boði er næstu 6 mánuðina. Fylgstu því vel með og vertu með okkur í ár til að verða hluti af Boot Camp fjölskyldunni.

