Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.

Hnébeygja
Hnébeygja með stöng
Komdu þér undir stöng í rekkanum svo hún liggi á ofanverðu bakinu. Kreistu hana fast með höndunum og reyndu að þrýsta olnbogunum undir stöngina svo að bakið spennist vel upp. Stígðu eitt skref aftur á bak og settu fæturna aðeins gleiðar en axlabreidd svo að tærnar vísi örlítið út. Dragðu djúpan anda niður í kvið svo þú spennir vel kviðvöðvana og mjóbakið. Sestu vel niður með því að setja þyngdina á hælana og þrýstu hnjánum út á sama tíma og þú lætur þig síga niður svo að hnén séu alltaf yfir tánum þínum. Láttu rassinn síga niður fyrir 90° áður en þú réttir aftur úr þér. Mundu að kreista rasskinnarnar vel saman á leiðinni upp og klára hreyfinguna uppi með því að spenna rassinn vel saman og þrýsta mjöðmunum létt fram á við. Vandaðu þig þegar þú skilar aftur stönginni á sinn stað.


