Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.

Stiff með stöng
Stiff með stöng
Stattu með fætur í axlabreidd svo tærnar vísi fram og hnén léttbogin. Haltu örlítilli fettu á mjóbakinu svo að bringan sé vel úti og stöngin liggur við framanverðan líkamann. Þrýstu rassinum aftur á bak en á sama tíma passarðu þig að beygja hnén ekki meira og að halda bakinu beinu í gegnum alla hreyfinguna. Með því að þrýsta rassinum aftur á bak færist stöngin neðar fyrir framan líkamann. Um leið og þú finnur góða teygju og spennu aftan í lærunum hættirðu að færa rassinn aftur á bak og byrjar að þrýsta mjöðmunum fram á við að nýju. Kláraðu hreyfinguna í gegn með því að spenna rasskinnarnar vel saman áður en þú byrjar á næstu endurtekningu. Horfðu fram allan tímann í æfingunni og passaðu að stöngin sé alltaf þétt við líkamann, ekki láta hana færast frá líkamanum þegar þú ýtir rassinum aftur á bak.


