Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS
Markmið okkar
Einstaklingar
Í Boot Camp eru þér engin takmörk sett! Þú getur alltaf meira en þú heldur og við munum krefjast meira af þér en þú hefur nokkru sinni gert áður. Með réttri hvatningu og sjálfsstyrk lærirðu að mörk þín liggja töluvert hærra en þú hefur áður talið og þú getur náð þeim markmiðum sem þú setur þér hverju sinni. Við viljum að æfingarnar skili þér ekki bara líkamlegum ávinningi heldur einnig andlegum og að þjálfunin nýtist þér í daglegu lífi eins og það hefur gert hjá svo mörgum á undan þér.
Hópurinn
Þótt að kröfur séu settar á hvern og einn eru kröfurnar sem settar eru á hópinn í heild sinni oft meiri. Kostir þess að æfa í hóp með öðrum eru margir og ótvíræðir. Það er enginn einn í Boot Camp og þú hvetur æfingafélaga þína jafn mikið með anda þínum og frammistöðu í tímanum og þeir hvetja þig. Við setjum hópnum í heild sinni markmið og það er sameiginlegt hlutverk allra að vinna saman að ná því markmiði. Samheldnin í tímum skilar miklu meira en þig órar fyrir og æfingarnar verða skemmtilegri fyrir vikið. Við viljum að þú hafir gaman af því að æfa og því er samvinna og hvatning æfingafélaga þinna meðal mikilvægustu þátta í Boot Camp.
Framtíðarsýn
Við höldum áfram að setja markið hátt og stefnum enn hærra en áður hvort sem um ræðir persónuleg markmið hvers og eins, árangur hópanna á æfingum eða Boot Camp hugtaksins í heild sinni. Við aðlögum okkur breyttum tímum og erum ávallt tilbúin að taka næsta skref, sama hvert það leiðir okkur. Við höldum áfram að vera í fararbroddi og ögrum líkamlegum og andlegum takmörkunum í hverju því sem við tökum okkur fyrir hendur.

