Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í BIS.
Hérna geta meðlimir Boot Camp fylgst með árangri sínum.

Verkefni
Auk þess að starfrækja námskeiðin hefur Boot Camp einnig getið sér góðan orðstír við önnur verkefni. Boot Camp hefur komið að þjálfun íþróttafélaga og stakra íþróttamanna, gefið út bækur og komið fram í ýmsu sjónvarpsefni.
Keppnir
Boot Camp stendur árlega fyrir hinum ýmsu íþróttamótum, bæði lokuðum sem eru þá eingöngu fyrir meðlimi Boot Camp sem og opnum keppnum fyrir almenning. Boot Camp er einn af stofnaðilum Þrekmótaraðarinnar og heldur Boot Camp keppnina, eitt af fjórum mótum ársins hjá Þrekmótaröðinni. Boot Camp keppnin er opin almenningi og hefur undanfarin ár farið fram utandyra á íþróttasvæðinu að Varmá í Mosfellsbæ. Auk þess heldur Boot Camp árlega nokkrar lokaðar keppnir fyrir meðlimi sína s.s. róðrakeppni, sérstaka jólakeppni sem og fleiri viðburði sem mætti setja undir þennan flokk.
Bókaútgáfa
Í ársbyrjun 2007 gaf JPV útgáfa út fyrstu Boot Camp bókina eftir stofnendur Boot Camp, þá Arnald Birgi Konráðsson og Róbert Traustason. Bókin, Boot Camp - Grunnþjálfun, byggði á Boot Camp æfingakerfinu og gerði fólki sem ekki hafði áður tök á að sækja námskeiðin tækifæri til að æfa eftir Boot Camp aðferðafræðinni. Við fengum ótal tölvupósta senda frá fólki sem hafði æft eftir bókinni og náð frábærum árangri, vinkonuhópar sem tóku sig saman og æfðu úti í sveit, einstaklingar sem æfðu eftir bókinni inni á öðrum líkamsræktarstöðvum og frá Íslendingum sem eru búsettir erlendis. Bókin seldist upp hjá útgefanda svo ný og endurbætt bók, Boot Camp - Hámarksárangur var gefin út af Forlaginu/JPV árið 2010. Hún hefur nú þegar selst í yfir 1.000 eintökum.
Sjónvarp
Boot Camp hefur einnig átt innkomu í sjónvarp með reglulegu millibili. Í kringum jólin 2006 sýndi Skjár Einn þáttinn Frægir í form þar sem sex þekktir einstaklingar voru teknir í vikulangar æfingabúðir undir stjórn tveggja Boot Camp þjálfara. Þar fengu þau að kenna á hinum ýmsu æfingum með því markmiði að breyta lífsstíl þeirar til frambúðar.
Sumarið 2007 komu svo þeir Ísland í dag félagar Steingrímur Ólafsson og Oddur Ástráðsson á 6 vikna námskeið þar sem þeir öttu kappi um hvor næði meiri árangri og var fylgst með þeim og framför þeirra í vikulegu innslagi. Strákarnir náðu báðir mjög góðum árangri og bættu sig umtalsvert þótt að um aðeins eitt námskeið hafi verið að ræða og sýndu landsmönnum um leið hvernig Boot Camp námskeiðin virka.
Haustið 2007 voru síðan sýndir þættir sem fjölluðu um árangur þeirra sem tóku þátt í fyrsta Hell Weekend námskeiðinu hérlendis en það var 36 klst áskorun sem reyndi á fólk til hins ýtrasta.
Auk þess hefur verið fjallað um Boot Camp ítrekað í tengslum við marga viðburði sem við höfum staðið að.
Hell weekend/ Boot Camp áskorunin
Í maí 2007 fékk Boot Camp hingað til lands þrjá bandaríska sérsveitarmenn til að halda helgarnámskeið byggt á hinni víðfrægu Hell Week sem vongóðir Navy SEALs kandídatar þurfa að sigrast á til að komast í sveitirnar. 30 Íslendingar tóku þátt í þessu fyrsta Hell Weekend námskeiði sem gekk vonum framar og höfðu hermennirnir aldrei áður séð jafn vel þjálfaðan hóp. Ári síðar mættu þeir félagar aftur og voru þá 50 manns sem spreyttu sig á námskeiðinu.
Sumarið 2010 héldu síðan Boot Camp þjálfararnir styttri útgáfu af þessu helgarnámskeiði og var fyrsta Boot Camp áskorunin haldin. Um var að ræða mjög stífa 18 klukkustunda dagskrá sem um 40 manns spreyttu sig á, ögruðu sér og urðu sterkari fyrir vikið.
Fyrirtæki og íþróttafélög
Boot Camp hefur komið inn í hin ýmsu fyrirtæki og þjálfað hópa þar. Meðal ánægðra viðskiptavina eru Marel, Samskip, Arion banki, Sjóvá, Hekla o.fl. Oft er um að ræða heilsuátak innan fyrirtækja þar sem Boot Camp hefur séð um mælingar, markmiðasetningu og stöðumat. Önnur fyrirtæki leita eftir þjálfun í skemmri eða lengri tíma og hjá Marel hefur m.a. verið starfrækt Boot Camp námskeið samfleytt í 5 ár við góðan orðstír þar sem hópur starfsmanna fyrirtækisins sem stundar æfingarnar hefur stækkað með hverju árinu.
Boot Camp hefur einnig komið að þjálfun ýmissa íþróttafélaga á undirbúningstímabili í ólíkum íþróttagreinum. Ýmist hafa félögin beðið um stakar æfingar til að hrista íþróttamenn sína saman, tekið stök námskeið eða heil undirbúningstímabil. Frá 2009 hefur Boot Camp séð um líkamlegan undirbúning meistaraflokks FRAM í knattspyrnu karla og unnið frábært starf með leikmönnum félagsins.
Vinsælt:
Stundaskrá
Verðskrá
Spurt og svarað
Blogg
Twitter
Sendu fyrirspurn
Núverandi BC námskeið:
2. janúar - 12. febrúar
Næstu BC námskeið:
13. febrúar - 25. mars
26.mars - 6. maí
Skæruliðanámskeið:
9. janúar - 6. maí
(Skæruliðar 4:
22.janúar - 29.apríl)



