Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Arnaldur Birgir Konráðsson

Framkvæmdastjóri og þjálfari
Sími: 862-6294
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Birgir er stofnandi og annar eiganda Boot Camp. Hann hefur yfir 10 ára reynslu af þjálfun og hefur sjálfur lagt stund á flest það sem hægt er að æfa frá unga aldri. Það er hans eigin reynsla sem hefur kennt honum hvernig best er að æfa og beitir hann sömu aðferðum á þá sem hann þjálfar. Árangur næst með fjölbreyttri og krefjandi þjálfun sem reynir ekki síður á andann og líkamann.

Birgir lauk einkaþjálfararéttindum frá ISSA árið 1998 og næringarfræðiprófi frá sömu aðilum ári síðar. Birgir er einnig menntaður lífvörður og lauk tveimur námskeiðum í þeim geira árin 1998 og 2001, annað í Bretlandi en hitt í Suður-Afríku. Á þessum námskeiðum voru kennarar allir fyrrum sérsveitarmenn og lærði Birgir mikið af þeim í dvöl sinni úti. Birgir fór einnig í sérstakar vikuæfingabúðir hjá fyrrum Navy SEALs sérsveitarmönnum í Bandaríkjunum og lauk því auðveldlega.

Birgir veit hvað þarf til að ná árangri. Hann hefur keppt í tugum þrekkeppna og hefur að undanförnu unnið öll þau mót sem lið hans hefur tekið þátt í. Hann hefur ennfremur klárað fjallamaraþon í Kína, hjólað 410 km viðstöðulaust yfir hálendið og hlaupið 100 km í einni lotu svo fátt eitt sé nefnt. Ekki slæmt fyrir 100 kílóa mann! Birgir er gangandi dæmi þess að með þjálfun eins og Boot Camp er hægt að stunda allt sem manni langar til, hvort sem það eru lyfta þungum lóðum, keppa í boltaíþróttum, þríþraut, fara í fjallagöngur eða hvað sem hugann girnist.

Birgir veit hvað er að æfa að andlegum og líkamlegum þolmörkum sínum og hefur þjálfað þúsundir einstaklinga til að ná einmitt þeim sömu markmiðum og hann setti sér sjálfur ungur; að geta gert það sem hann langaði til og láta líkamlegt ástand aldrei standa í vegi sínum fyrir að gera nokkuð. Það er sá metnaður og brennandi áhugi hans á að koma fólki í toppform sem gerir hann og Boot Camp að því sem það er í dag.


Aftur á þjálfarasíðu